|
|
15.11.2006 10:08:54 / Snemmi
Ætlaði að setja þetta á snemmi.bloggar.is
en þar sem bloggar kerfið er í einhverju rugli þá set ég þetta
hér.
Nú eru svona “ég man” listar
að á annarri hverri bloggsíðu sem að maður fer á. Fannst þetta
frekar sniðugt þannig að ég var að hugsa um að gera bara einn
svona. Vonandi nennir einhver að lesa þetta allt.
- Ég man þegar að bjó á
Vallá.
- Ég man þegar að vinkona mín á
Vallá varð fyrir bíl og dó aðeins 4 ára gömul.
- Ég man þegar ég þegar ég
flutti aftur heim til Húsavíkur.
- Ég man þegar ég vaknaði á
hverjum morgni klukkan 7, við það að afi var að slá
garðinn.
- Ég man þegar Siggi Valli
flutti í brekkuna.
- Ég man þegar ég var að tala
við Gísla í 9 bekk, þegar ég þekkti hann mjög lítið, og við komumst
að því að við áttum sömu langömmu.
- Ég man þegar ég datt í það í
fyrsta skiptið.
- Ég man þegar ég fór í partý
til Fríðu “nýju” og var hent út.
- Ég man þegar eftir öllum
partýunum heima hjá Hermanni Þór.
- Ég man þegar ég fór í fyrsta
skipti til Englands.
- þegar
maður labbaði inn á Old Trafford og hugsaði “Djöfull er þetta
lítið”.
- þegar
maður var vakinn um miðja nótt því að það var verið að bera Bigga
upp á herbergi.
- Þegar
við fórum í bíl með klikkaða leigubílstjóranum
- Ég man þegar ég byrjaði að
vinna í Úrval og vissi ekkert hvað ég átti að gera ef að ég var
ekki á kassa.
- Ég man þegar ég var að vinna
í kirkjugarðinum og Fjalar ljósritaði símaskránna.
- Ég man þegar ég var á
rúntinum með Gísla Árna og Finni og Arna Rún byrjaði að elta
okkur.
- Ég man þegar við Siggi eyddum
heilum jólum í að spila cm 01/02
- Ég man þegar ég skrópaði í
sögu tíma og sat frammi á gangi og var að spjalla við einhvern
tjörnesing um Bjarna frænda. Þetta voru fyrstu kynni mín af
Heiðari.
- Ég man eftir öllum
bekkjarleikunum.
- Ég man þegar ég var alltaf í
playmo með Samma þegar hann bjó á Mararbrautinni.
- Ég man eftir því þegar ég
náði Þýsku og var þar með útskrifaður úr F.S.H.
- Ég man þegar ég kom heim úr
skólanum þegar ég var í fimmta bekk, og Árni Kjartans var þá heima
að lóga kettinum. Gerði það með því að snúa hann úr hálslið. (Ekki
fallegt!)
- Ég man þegar að ég kláraði
samræmduprófin og hluti af bekknum fór og datt í það í
skrúðgarðinum. (góðir tímar)
- Ég man þegar að ég frétti að
afi Tryggvi væri dáinn.
- Ég man þegar ég braut
ljósakrónu heima með því að henda lyklakippu í hana.
- Ég man svo að nokkrum dögum
seinna hoppaði ég upp í ljósakrónuna og skar mig í litlaputtann
alveg að beini.
- Ég man þegar ég
handsleggsbrotnaði við það að verja fótbolta þegar ég var
lítill.
- Ég man líka þegar ég
handsleggsbrotnaði á diskóteki.
- Ég man þegar ég fór í
Hólabrautinna til Öllu og Bubbu þegar ég var lítill og fékk after
eight og 500 kall í hvert skipti.
- Ég man þegar amma og afi
bjuggu á neðri hæðinni og maður gat alltaf komið við þar og fengið
nýbakað brauð og nesquick.
- Ég man þegar ég var alltaf út
í Héðinshöfða þegar ég var yngri.
- Ég man líka alltaf þegar ég
mátti aldrei fara frá matarborðinu þar nema ég væri búinn að fá mér
af öllum sortum og klára rúsínurnar sem að ég týndi alltaf úr
jólabrauðinu.
- Ég man þegar ég og Nonni
vorum að alltaf að gera dyrat hjá Agli Olgeirs því að okkur fannst
svo skemmtilegt lag í dyrabjöllunni.
- Ég man þegar ég, Sammi og
Rúnar héldum tombólu.
- Ég man eftir hjólabílnum sem
ég átti þegar ég var lítill. Það var svona gul grafa með rauðri
skóflu og ég kallaði hann því frumlega nafni Billa bíll. (var svona
2-4 ára)
- Ég man eftir Eurovision
partýunum heima hjá Mikka Dollu.
- Ég man þegar að ég og Árný
vorum alltaf að slást.
- Ég man þegar Árný setti
klemmur í hárið á mér og var að leika hársnyrti.
- Ég man þegar ég æfði
fótbolta.
- Ég man þegar ég fór á Reyki
og var með Aðalsteini og Friðgeiri í herbergi.
- Ég man eftir skólaferðalaginu
í 10 bekk.
- Ég man þegar að ég var úti á
Spáni.
- Eftir
kallinum sem var að dansa á ströndnni.
- Eftir
öllum celtic aðdáendunum.
- Eftir
öllum partýunum sem voru haldinn í okkar íbúð
- Eftir
köldu sundlauginni
- Eftir
karókíbarnum
- Ég man þegar þegar maður var
oft á rúntinum langt fram á nótt.
- Ég man hvað ég var ánægður
þegar að mamma og pabbi gáfu mér æðibita kassa í jólagjöf. (fékk
reyndar hljómfllutningstæki seinna um kvöldið. En ég var sáttur við
nammið)
- Ég man þegar ég fékk allt
he-man dótið hans Þórðar í afmælisgjöf.
- Ég man þegar að ég var alltaf
með Steinþóri frænda.
- Ég man þegar að ég og Gummi
vorum alltaf að kveikja í einhverju drasli upp í skógi.
- Ég man þegar að ég var í
skólagörðunum.
- Ég man hvað það var gaman að
byrja í F.S.H og vera busi.
- Ég man eftir ökutímunum hjá
Sigga Þórarins, og þegar hann hringdi alltaf í mig þegar að ég var
að detta í það til að fá mann í ökutíma daginn eftir.
- Ég man þegar að ég var að
bera út dag og þorði aldrei að rukka í Túni því að ég var svo
hræddur við Gunna Bald.
- Ég man þegar ég var að leika
mér heima hjá Gunna Bald og hann var að steypa eitthvað. Vorum í
eltingaleik ég og Jói vinur minn á Vallá, hann var sem sagt frændi
Gunna Bald, og annar hvor okkar steig á óþornaða steypuna og Gunni
gaf okkur ræðu.
- Ég man þegar ég fékk hálsríg
þegar ég bjó á Vallá og þurfti að liggja á sjúkrahúsi í nokkra
daga.
- Ég man þegar að ég byrjaði í
fyrsta bekk í skólanum á Kjalarnesi, vorum bara 5 í bekk og ég var
sá eini sem kunni að lesa
.
- Ég man þegar að ég fór með
mömmu og pabba inná akureyri til að kaupa Hyundai-inn.
- Ég man þegar að mamma var að
vinna í bakaríinu og maður fékk alltaf horn hjá henni.
- Ég man þegar að það var
einhver veisla á Vallá og það kviknaði í servíettu og pólverjinn
Slanislaw, sem var að vinna þarna, reyndi að slökkva eldinn með því
að raða servíettum ofan á hann.
- Ég man þegar ég fór til
U.S.A.
- Þegar
ég datt í kyrrahafið
- Þegar
ég fór í disneyland og universal studios
- Þegar
við vorum að fljúga yfir Manhattan og ég sagði “Reykjavík lítur út
eins og Grenivík miðað við þetta”
- Ég man þegar ég bjó á
Grenivík í mánuð og vann við það að passa Þóreyju
frænku.
- Ég man þegar við áttum lödu
sport og öllum skiptunum sem hún bilaði.
- Ég man þegar að Dalrós
langamma dó og að ég fór ekki í jarðarförina því að ég var svo
þunnur (er enn með smá samviskubit yfir að hafa ekki
farið)
- Ég man eftir því þegar að
maður var alltaf í keldunni.
- Ég man þegar ég fermdist og
hvað mér fannst leiðinlegt að þurfa að tala við alla
gestina.
- Ég man þegar maður var alltaf
að renna sér á stiga sleða út í Héðinshöfða á veturna.
- Ég man í þegar að ég lék
lögregluþjón í sjöundarbekkjarleikritinu, og gott ef að það var
ekki í því leikriti sem að ég þurfti að dansa macarena
dansinn.
- Ég man þegar að ég var að
læra á klarenett með Hemma, Friðgeiri og Fjólu. Bestu klarenett
leikarar í heimi

- Ég man þegar að ég samdi
fullt af sögum í 5 eða 6 bekk.
- Ég man þegar að ég fauk, var
á þeim tíma sem að ég bjó á Vallá og það er oft hrikalega hvasst
undir Esjunni. Fauk lengst niður á Tún en náði einhvern veginn að
koma mér heim.
- Ég man hvað ég öfundaði Árna
Má, son Árna Kjartans, mikið fyrir að eiga fjarstýrðan
bíl.
- Ég þegar að Árni Kjartans kom
og sagði mér að Man Utd hefði unnið meistaradeildina og hló mikið
af því að Bayern mennirnir fóru að gráta í leikslok.
- Ég man eftir
útvegsspilinu.
- Ég man þegar að pcliga var
aðalleikurinn.
- Ég man þegar að við vorum
nokkrir strákarnir sem að leiðgum höllina á mánudagskvöldum og
fórum í fótbolta.
Held að það sé ágætt að vera ekkert að hafa þennan "ég man" lista
lengri.
Annars er það að frétta af mér að ég fór í
vísindaferð á föstudaginn. Farið var í Spron og þar var okkur sýnt
aðalstöðvarnar og svo var mikið verið að kynna DMK fyrir okkur. Sem
er víst nýtt kort á markaðnum. Þetta var fyrsta væisindaferðin sem
að ég hef farið í. Þótti ekki leiðinlegt að maður gat fengið ser
eins mikið af Heineken og maður vildi. Ferðin var búin um
kvöldmatarleytið. Seinna um kvöldið fór ég með Gísla og Finni í
bíó, Gísli vann tvo miða á Flyboys í einhverjum leik á FM957 og var
þetta hin fínasta skemmtum bara. Þegar ég kom heim fór ég inn á
Uglu, innra kerfi háskólans, og sá þar að Mágus, nemendafélag
viðskiptafræðinnar, er sextugt einhvern tímann á næstu dögum og að
því tilefni er boðið upp á bíóferð í kvöld og verður farið á
myndina Borat.
Gerðist skemmtilegur atburður nú í vikunni. Vorum á
rúntinum ég, Gísli, Jói bróðir hans og Arna Rún. Jói sat fram í og
ákvað að vera eitthvað fyndinn og skrúfa niður rúðuna. Þá vildi svo
skemmtilega til að rúðan fór ekkert upp aftur. Komst síðan loksins
með bílinn í viðgerð í gær, þurfti að geyma að bílinn út á stæði
með rúðuna niðri og þá snjóaði og ringdi nottla allan tímann. En
síðan hefur ekki komið dropi úr lofti síðan ég fór með bílinn í
viðgerð, en það hefur verið kalt þannig að annað framsætið er
frosið.
Nú eru samt bara 4-4 vikur í að prófin byrji.
Þannig að ég veit ekki hversu duglegur maður verður að blogga á
næstunni. Þarf að fara að lesa eins og brjálæðingur og læra þessa
diffrun í eitt skipti fyrir öll. Verð búinn í prófum 21. des. og
flýg heim seinna um daginn. Verður það í fyrsta skipti sem að ég
fer í innanlandsflug. Hlakkar ekkert smá til að komast
heim.
Jólin eru að riðja sér inn á heimilið hérna á
Reynimelnum. Kom að Gísla um daginn að hlusta á jólalög og borða
piparkökur. Þótti það nú full snemmt. Það lýður víst að því að
maður þurfi að fara að kaupa jólagjafir. Þarf að gera það áður en
að prófin byrja, þbí að ekki getur maður verið að versla í miðjum
prófundirbúning eða farið að versla eftir prófin þann 21. Mamma og
pabbi koma suður eftir 2 vikur og býst ég við að versla
jólagjafirnar þá. Hægt er að setja inn jólagjafa óskalista í
komment fyrir neðan svo að maður viti hvað maður getur gefið
fólkinu í jólagjöf.
Reikna ekki með því að nokkur maður sé að
lesa þetta lengur þannig að ég segi þetta bara gott í
bili.
»
23.04.2006 20:15:37 / Snemmi
Jæja þá er maður kominn með fjórðu síðuna. Þegar ég skráði mig inn
á þessa, þá var manni hótað öllu illu og vinsamlegast beðinn um að
drulla sér yfir á minnsirkus.is. En þar sem að það er glórulaust
bloggkerfi verður gerð ný síða á bloogar.is. Slóðin á nýju síðuna
mína er því: www.snemmi.bloggar.is
»
19.04.2006 09:52:42 / Snemmi
Já ótrúlegt en satt, þá er ég hér enn. Sit upp í skóla og er að
deyja úr leiðindum og mundi þá allt í einu eftir síðunni minni. Hef
ekki bloggað nú í tvær og hálfa viku þannig að það er kominn tími á
þetta.
Páskarnir voru alltof fljótir að líða. Maður eyddi páska"fríinu"
að mestu í Úrval. Ætlaði síðan að vera edrú alla páskana vegna
peningaleysis og vegna mikillar vinnu. Fór þess vegna á
páskadagskveld á rúntinn. Tók drykkjurútinn hann Finn með, og tjáði
hann mér að hann ætlaði að fara að drekka með Mikka og Heiðari og
að Bjarni frændi ætlaði að drive-a. Tók ég þá þá gáfulegu ákvörðun
að fara bara með þeim á rúntinn til að spara bensín. Eftir að hafa
rúntað með þeim í c.a. 15-30 mínútur, var ég orðinn svo bjórþyrstur
að ég ákvað að fara heim og ná í þessa 6. bjóra sem ég átti. Ætlaði
nú samt ekki að drekka nema tvo til þrjá. Endaði með því að maður
var blindfullur á balli. Nokkuð skemmtilegt ball, alla vega það sem
að ég man eftir.
Verð samt að segja frá því að áður en við fórum á ball þurfti
Bjarni að fara heim til sín til að borða banana 
Drykkur helgarinnar: Víking gylltur.
Hljómsveit helgarinnar: Von
Driverar helgarinnar: Bjarni og Rakel
Matur helgarinnar: Banani
Setningar helgarinnar: Mikki Dollu: "Það er hægt að ríða honum"
og "Ég rakaði mig í dag" Seinni setningin kom þegar að Bjarni var
að segja Heiðari sögu. Þá ákvað Mikki að deila þessu með okkur.
Idolstjarna helgarinnar: Ína
Glórulaus hegarinnar: Finnur
»
02.04.2006 16:38:58 / Snemmi
Vá hvað Egó er góðir á balli. Besta ball sem að ég hef nokkurn
tímann farið á.Enda þegar að hljómsveit tekur lög eftir Egó,
Utangarðsmenn og Bubba sjálfan, þá er ekki við öðru að búast en
fjöri. Ætlaði allt um koll að keyra þegar að þeir spiluðu lög eins
og Móðir, Ísbjarnablús, Hiroshima, Stórir strákar og síðast en ekki
síst Fjöllin hafa vakað. Eini gallinn var sá að þeir spiluðu heldur
stutt.
En ég fór í sextugs afmæli til Ellu í gær og það var bara nokkuð
gaman. Sigurður Hallmarsson og frú, settu upp nokkuð góðan leik
þátt. Siggi Illuga var svo veislustjóri og var bara nokkuð góður.
Svo fór maður og söng fyrir liðið, enda frábær söngvari hér á
ferð.Úrvalsliðið gaf Ellu gjafabréf á Laxamýri, sem fól í sér að
Ella mætti annast eina kýr í heilan dag. Bara fyndið.
En maður víst að fara í páskafrí. Held að það sé bara ein vika í
það. Spurning hvort að því verði ekki bara öllu eytt í Úrval. Eitt
gott við það samt er að þá kemur allt liðið norður. Þá getur maður
að gera eitthvað skemmtilegt til tilbreytingar.
Ætla að fara að halda áfram að vera þunnur. Þangað til
næst.......
»
29.03.2006 23:47:44 / Snemmi
BREAKING NEWS: Bjarni Jónasson er búinn að segja konunni upp. Já,
maður er ekki enn búinn að átta sig á þessu. En Bjarni er sem sagt
á lausu aftur og er að fara að veiða með Mikka Dollu á
Föstudagskvöldið. Nú verða stelpurnar að passa sig.
Var í fríi í dag, eftir að hafa unnið hvern einasta dag frá því á
mánudag 20. Mars. Glórulaust að vera svona í fríi því að maður
hefur ekki hugmynd um hvað maður á að gera af sér. Horfði á Man Utd
vinna West Ham áðan og ákvað Heiðar Idolskelfir að koma og horfa á
leikinn hjá mér, svo hann gæti séð sinn mann Sheringham spila.
Bjarni kom svo og horfði á restina af leiknum með okkur og lýsti
því yfir að hann væri að fara með Mikka á barinn að hözzla á
föstudaginn. Eftir leikinn voru svo teknar nokkrar beygjur með
Heiðari, en Bjarni ákvað að fara kvennmanslaus heim að sofa. Gunni
Siggi ákvað að svo að taka okkur upp í. Þar voru margar og
skemmtilegar sögur sagðar og mikið hlegið. Síðan kom enn einn
Tjörnesingurinn í bílinn þegar að Siggi Valli ákvað að koma með og
var þetta bara býsna skemmtilegt kvöld.
Heiðar var eitthvað að pressa á Bjarna að fá sér í glas á morgun,
og fyrst maður er ekki í skóla á föstudaginn, getur vel verið að
maður sötri aðeins með þeim þá. En á laugardaginn eiga allir að
demba sér í Sjallann á Egó. Uss hvað það verður gaman. Væntanlega
gist á Eyrinni og allur pakkinn.
Var annars að sjá próftöfluna mína, og vill svo skemmtilega til að
þessi 2. próf sem að ég er að fara í, eru fyrsta og síðasta
prófdaginn. Nokkuð pirrandi það. Hefði verið til í að ljúka þessu
bara af sem fyrst, en það er víst ekki hægt. Áætlað að taka sér
lágmark tveggja daga frí frá vinnu til að læra undir prófin.
Spurning hvernig það mun ganga. Gekk ekki nógu vel í fyrra.Maður
verður víst að ná þessu til að útskrifast sem er frekar fárárnlegt
þar sem að þetta mun ekki gagnast mér í háskóla. Hvorki þýska né
náttúrufræði.
Ætla segja þetta gott í bili. Skrifa eitthvað skemmtilegt hérna inn
eftir helgi.
»
23.03.2006 21:25:21 / Snemmi
Hrollaugur Bósi það er kalt úti. Ástæða fyrir bloggleysi á
þessari síðu er sú að ég hef verið að vinna eins og ég veit
ekki hvað alla vikuna. Þannig að vikan hefur verið þannig að
ég byrja að vinna þegar að ég er búinn í skólanum og vinn til
klukkan 20. Vann fyrir Gísla á mánudag, en er búinn að vera
að vinna fyrir Sirrý síðan á þriðjudag. Fæ samt ekki frí á
morgun, þótt hún sé að koma aftur, því að ég þarf að vinna
fyrir Hófí og Gunna í kjötinu. byrja klukkan 9 og verð til
klukkan 20. Verður bara gott að fá smá tilbreytingu.
Síðustu helgi fór ég samt suður á Idol. Þar datt Alexander út og er
lítil eftirsjá af honum, enda svo sem ekki efni í poppstjörnu.
Gerði þau regin mistök að syngja lag eftir Jónsa sem er mjög
erfitt. En alla vega fór ég suður á fimmtudegi og var byrjað á því
að fara í ríkið og kaupa sér gyllt gos og svo var farið í
kringluna, ótrúlegt en satt. Þar þekkti Friðgeir mann og annan,
voru flestir Kr-ingar held ég. Svo var bara sötrað með Finni um
kveldið og farið í Pro Evalution Soccer 4 og spilað popppunkt. Það
þarf varla að taka það fram að ég rústaði Finni í öllu sem keppt
var í. Restinni af helginni var eytt í Kringlunni og Smáralind.
Ótrúlegt en satt þá hitti maður slatta af Húsvíkingum. Var þar
fremstur í flokki Gummi Svavars sem að ég sé alltaf þegar að ég fer
suður. Var samt nokkuð fyndið þegar að maður var á Idolinu, að þá
leið manni bara eins og maður væri á einhverri skemmtun hérna í
höllinni á Húsavík því að maður þekkti annan hvern mann þarna. Ætti
eiginlega að fara fram í Kringlunni því að maður sér alltaf fleiri
Húsvíkinga þar en í Smáralindinni.
Veit ekkert hvað ég á að bulla meira, svo að fer bara að segja
þetta ágætt.
Idol helgarinnar: Ína
Tapari helgarinnar: Finnur
Hringur helgarinnar: Gísli
Partýdýr helgarinnar: Friðgeir
Leiðinlegasti rúntur landsins: Reykjavíkur rúnturinn
Leiðinlegasti staður til að hanga einn á í 6 tíma: Kringlan
Afmælisbarn vikunnar: Ég
Drykkur helgarinnar. Egils Gull
Skot dagsins: Thelma "Er hjúkrunarfólkið komið?" Kjartan: "Meinaru
skúringarfólkið?" Thelma "Já eða það"
Takk fyrir kærlega.
»
15.03.2006 11:06:28 / Snemmi
Ok. Blogg skal það vera. Ekki búinn að gera neitt merkilegt
undanfarið nema bara að vinna og mæta í skóla. En á morgun er
stefnan sett á borgina og þar er stefnan sett á drykkju og almenn
leiðindi. Legg af stað eftir skóla á morgun, sem er svona um 9
leytið, og verð því kominn frekar snemma suður. Veit ekki alveg
hvað ég á að gera yfir daginn, ætli það veri ekki Kringlan og
Smáralindin eins og venjulega, en um kvöldið á að demba sér á
kæjann með Finni. Föstudegi verður svo eytt í þynnku og um kvöldið
verður farið og horft á Ínu í Idolinu. Friðgeir ætlaði svo að kynna
mig fyrir djammmenningunni á Laugardagskvöldið. Veit ekki hvort að
maður fari svo heim á Sunnudegi eða bara á Mánudegi, fer eftir
heilsu manna og einhverju fleiru.
Í kvöld er svo stefnt að því að fara á Frelsi, sem er leikritið hjá
10. bekk. Held að það verði bara gaman. En hef þetta ekki lengra í
bili. Betra blogg og fleiri myndir eftir helgi.
»
02.03.2006 12:36:49 / Snemmi
Menn endalaust að kvarta yfir hvað ég blogga sjaldan. Þannig að það
er best að maður skelli inn einu kvikindi. Ný kominn úr skúrnum frá
Sigga, var boðaður þangað í kaffi og ál spjall. Tók ég nokkrar
myndir af kallinum að störfum og er hægt að sjá þær í tenglinum
"Englandsferðir" hér til hliðar.
Helgin var fín, Söngkeppni F.S.H var á fimmtudeginum, þar sem að
Aron bleiki fór á kostum. Á Föstudeginum var svo Árshátíð og ball
með Bermúda, sem að er versta ball hljómsveit sem að ég veit um.
Árshátíðin var fín. Steinn Ármann sýndi það og sannaði að hann er
einn sá fyndnasti í bransanum. Myndir af árshátíð og dillicup er
hægt að skoða í tenglinum "Englandsferðir" hér til hliðar. En eftir
árshátíð var farið og fengið sér nokkra kalda fyrir ball. En besti
hlutinn var eftir ballið. Þá fór maður að rölta eitthvað í bænum á
meðan fólk var að reyna að komast í partý til Brynjars. Þegar að
maður kemur hjá Árbóli þá sér maður að það er verið að skutla
Steini Ármanni heim. Lennti maður líka á þessu þrusu spjalli við
manninn, sem var blindfullur og miklu fyndnari en hann var á
árshátíðinni. Sagði okkur, sem á hlustuðum, frá því þegar að hann
var hérna síðast og náði þá í konu sem var svona spiiiiiiikfeit.
Síðan hefði hann verið að skemmta í Borgarfirðinum, þaðan sem að
hann er ættaður, og náð sér í eina spiiiiikfeita og ekki nóg með
það heldur voru þau systkinabörn.
Á Laugardeginum vaknaði maður svo óþunnur, sem var skemmtileg
tilbreyting, og gat maður þá gert grín að Finni sem var að deyja úr
þynnku. Frétti svo að það væru allir að fara í sjallann um kveldið
og ætlaði því bara að vera rólegur heima. Svo er hringt í mig um
kveldið og spurt hvort ég nenni ekki að ná í Bjarna út á
Héðinshöfða, verðandi Álver, og skutla honum heim til Mikka Dollu.
Hélt að það væri nú lítið mál og ákvað að drekka mönnunum til
samlætis. Endaði það með mikilli ölvun og var endað á Bauknum.
Sunnudagsþynnkunni var svo eytt í Úrval.
Held að það verði ekkert dregið úr drykkju þessa helgi. Menn að
reyna að fá mig á Wig Wam og svo er líka búið að bjóða mér í
afmæli. Verð haugaður held ég. Held að þetta sé að verða fínt í
bili.
Orð helgarinnar: Spiiiikfeit
Bikar helgarinnar: Deildarbikarinn
Þynnka helgarinnar: Sunnudagsþynnkan
Pósa helgarinnar: Árshátíðarpósan hjá Örnu
Símsvari helgarinnar: Gísli Árni
Markaskorari helgarinnar: Siggi Valli
Graðasti maður helgarinnar: Steinn Ármann
Samkynhneigð helgarinnar: Finnur
Partýdýr helgarinnar: Friðgeir
Afmælisbarn helgarinnar: Hulda
Drykkur helgarinnar: Vodki í sprite og jarðarberjasvala.
»
13.02.2006 17:57:00 / Snemmi
Bloggaðu sagði maðurinn.
Ætli maður verði ekki að hlýða því. Gerðist nú ekki margt
fréttnæmt í síðustu viku nema það að ég fékk frí, já ég fékk
frí, á Föstudaginn. Ekki nóg með það heldur fékk ég líka frí á
Sunnudeginum og ég er í fríi í dag líka. Endar með því að maður
þarf að fara í starfsþjálfun þegar að maður mætir aftur í
vinnu.
Föstudeginum var eytt í það að
bíða eftir að Finnz og Gilz kæmu í bæinn. Þeir komu ekki fyrr en um
kvöldmat. Um kvöldið ákváðum við Finnur að fara á röltið og var
komið við á hótelinu til að sjá Ínu syngja í Idolinu. Eftir það fór
Finnur heim en ég fór aftur á röltið, glórulaus ég.
Var svo mættur í vinnu á
Laugardeginum, en um kvöldið var plönuð ferð í Sjallann á ball með
Skímó. Vinnudagurinn var frekar lengi að líða og það var nú ekki
langt liðið á ddaginn þegar að ég frétti að Gilz hafði forðað sér
úr bænum aftur. Kallinn hefur ekki þolað að vera svona lengi í
stórborginni, þannig að hann dreif sig aftur suður í sveitina.
Friðgeir var maður helgarinnar því að hann reddaði manni á
gestalista og læti þannig að það var farið frítt á ballið. Við
Finnur störtuðum heima hjá mér og var horft á brot af Green Day,
Muse og White Stripes tónleikum. Síðan var horft á þrennu tímabilið
hjá Man utd og svo endað á því að horfa á nokkur vel valinn mörk
með meistara Forlan. Birgitta var driver og byrjaði hún nú bara á
því að rúnta, því að hún vildi ekki fara á Akureyri nema að vera
pottþétt að hún og Hilma kæmust inn. Endaði það með því að ég
hringdi í Friðgeir sem að sagðist reyna að koma þeim inn, en ég
breytti því að það væri pottþétt að þær kæmust inn, þannig að það
var lagt af stað. Það var stuð í Sjallanum og allt fullt af fullu
fólki. Ég man eftir því að hafa verið að reyna að fá Skímó til að
rokka eitthvað, en það tókst illa og spiluðu þeir bara frumsamin
lög. Besta lagið sem að hljómaði þetta kvöldið var “Til Hamingju
Ísland” með Silvíu Nótt, en það var spilað í hléinu og var mikið
fagnað þegar að það byrjaði að hljóma. Eftir ballið þurftum við að
bíða eftir Friðgeiri, en hann ætlaði með okkur Norður, sem var að
ganga frá eftir hljómsveitina. Ég veit ekki hvað við vorum búin að
bíða lengi, en það endaði með því að við skildum hann eftir. Maður
var kominn heim klukkan 06:30 og var farið beint í
háttinn.
Á Sunnudeginum vaknaði ég svo
klukkan 10:30, langur svefn, við það að ég var að drepast í
löppinni. Þá hafði kallinn misstigið sig svona skemmtilega í
Sjallanum en þar sem að ég var vel deyfður á þeim tíma, var ekkert
hugsað meira um það og hoppað allt kvöldið. Þurfti ég því að taka
því rólega á Sunnudeginum, bæði vegna þynnku og stokkbólginnar
lappar. Kíkti á rúntinn með Finni í klukkustund eða svo. Þá fóru
hann og Friðgeir aftur suður.
Síðan er ég er nú að fara
suður á Fimmtudaginn. Var stefnan sett á að fara á Idol á
Föstudaginn, en það seldist upp á 20. mínútum. Ekki veit ég hvað
verður gert í staðinn. Ætli næst blogg verði ekki bara næsta
Mánudag, þá getur maður sagt frá ferðinni og sett inn nokkrar
myndir og eitthvað. Held að þetta sé orðið ágætt
núna.
Snemmi kveður.
P.s. Ákvað að skella inn
nokkrum myndum af djamminu og síðan eru 3 myndir af framkvæmdunum á
neðri hæðinni.
Var að sjá að Heiðar hefði (klukkað) mig. Þá á maður víst að svar
einhverjum spurningum.
Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina :
1. Samkaup-Úrval
2. Kirkjugarðar Húsavíkur
3. Blaðaútburður (Dagur, Dagur-Tíminn og DV)
4. Bæjarvinnan
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur :
1. Hot Shots
2. Ace Ventura
3. Boondock Saints
4. Pulp Fiction
Fjórir staðir sem ég hef búið á :
1. Skálabrekka 9 efri hæð
2. Skálabrekka 9 neðri hæð
3. Vallá, Kjalarnesi
4. Vallholtsvegur 9
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar :
1. King of queens
2.Ensku Mörkin
3. Simpson
4. Malcolm in the middle
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. www.fotbolti.net
2. www.manutd.is
3. www.hotmail.com
4. www.hugi.is
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Manchester (Old Trafford)
2. London (Highbury)
3. Phoenix
4. Los Angeles
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
1. Kindahjörtu
2. Lambalæri
3. Tortillas
4. Pizza
Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Old Trafford
2. Frakklandi
3. Tónleikum með Green Day
4. er ekki nóg að nefna 3?
Átta bloggarar sem ég klukka:
1. Gísli
Sig
2. Allir sem
að lesa þetta og hafa ekki svarað þessu
»
03.02.2006 12:25:27 / Snemmi
Nú hefur verið mikil umræða um þáttöku Sylvíu Nótt í Eurovision. Ég
er á því að það eigi að senda út til Grikklands (unnu þeir ekki í
fyrra?). Þetta er nottla rugl keppni og Sylvía er rugl persóna.
Held að hún myndi ná nokkrum vinsældum eins og Norsararnir í fyrra.
Þeir voru einmitt eitthvað svona grín. Búið til boyband sem að söng
eitthvað ömurlegt og stolið lag og þeir voru nú vinsælir. Það er
líka kominn tími á að senda eitthvað öðruvísi lag út. Höfum sent
eins lög í þetta síðan að gleðibankinn fór út. Annað hvort róleg
ástarlög eða svona poppslagara sem að eru eins og öll hin lögin í
keppninni. Sylvía Nótt er rétti karkterinn til að fara út. Hún
myndi fá feikna mikla athygli fyrir að vera öðruvísi en allir hinir
keppendurnir þarna úti og þetta er nú ekki beint hefðbundið
Eurovision lag sem að hún syngur. Þannig að fólk mun þá kannski
muna eftir laginu þegar að keppnin er búin.
Búinn að heyra lagið eins og flestir. Get nú ekki sagt nú ekki sagt
að ég hafi verið hissa á að lagið skyldi óvart fara á netið. Þetta
er náttúrulega aðallega gert til að auglýsa persónuna. Eurovision
er vinsælt á Íslandi og er ekki að fara að byrja á nýrri þáttaröð.
Þetta er náttúrulega auglýsing dauðans. En ekki séns á að það hafi
verið hægt að reka hana úr keppni vegna vinsælda hennar.
Snemmi Kveður.
»
30.01.2006 14:34:39 / Snemmi
Held að þessi síða fari að deyja bráðum, alla vega að fara
í dvala eitthvað framm á sumar. Nenni ekki orðið að skrifa á
hana og hef svo sem ekkert til að skrifa um. Flestir
dagar eru eins þ.e. einn tími í þýsku á morgnanna og svo
vinna klukkan 16. En vonandi fer eitthvað skemmtilegt að
gerast. Ég er reyndar að fara að æfa með Grúti FC, komst samt
ekki á fyrstu æfinguna sem að var í gær.
Spurning með að segja frá einhverju áhugaverðu fólk er víst ekki
að skoða þessu síðu til að lesa nöldrið í mér. Á Föstudaginn
ruddist ég heim til Gísla Árna og horfði þar á Idolið með Örnu Rún.
Eins og allir vita komst Ína "okkar" áfram og var með betri
söngvurunum þetta kvöldið. Mér fannst þessi þáttur reyndar alltof
langur, enda var hann ekki búinn fyrr en rétt fyrir miðnætti. Mætti
nú alveg stytta þetta um 30-60 mínútur alltof langt. En á
Laugardeginum var maður nú bara að vinna eins og venjulega, þegar
að Mikki Dollu spyr mann hvort það eigi ekki að kíkja í glas um
kveldið að tilefni 20 ára afmæli kalls. Maður tók nú ekkert
rosalega vel í þetta þar sem að ég þurfti að fara, ótrúlegt en
satt, að vinna á Sunnudeginum. Ákvað samt fyrir rest að kíkja á
kall og fá mér 2-3 kalda til samlætis. Var búinn með 2. þegar að ég
kom til Mikka og þá var ég líka orðinn svona helvíti nettur. Þegar
að ég var búinn með 2. í viðbót þá var ég orðinn fullur eða bara
blindfucking fullur eins og einhverjir myndu orða það. Það þótti
fólki ekki leiðinlegt þar sem að ég er fínn edrú en snilld fullur.
Ætlaði nú reyndar að taka myndavélaskrattann með mér en hún var að
sjálfsögðu með tóma rafhlöðu. Þannig að ég náði nú ekki myndum af
Bjarna og frú en maður bætir úr því seinna. Minnir að ég hafi verið
að plana Englandsferðir með öðrum hverjum manni í húsinu og mig
minnir líka að menn hafi tekið vel í það enda allir í vinu og læti.
En ég efast um að það rætist eitthvað úr þeim. Þar sem að þær
ferðir sem að ég hef skipulaggt drukkinn hafa aldrei orðið að
veruleika. Plús það að ég er að fara til Spánar í útskriftarferð í
Maí og mun þá ekki hafa efni á mikið fleiri ferðum í ár.
Hér á síðunni mun síðan innan skamms koma skotabók. Þar verður
listi með eftirminnilegum setningum sem að maður hefur heyrt í
gegnum tíðina og verður síðan bætt í hana reglulega.
Snemmi kveður.
»
18.01.2006 21:49:59 / Snemmi
Fólk farið að kvarta undan því hvað maður bloggar lítið. Þannig að
maður hendir kannski bara inn einu stykki núna.
Var að koma frá Laugum, sem er mesta skítapleis sem að ég hef farið
til, og þar sá ég F.S.H skíttapa fyrir heimamönnum. Var reyndar
orðinn viss um það að við myndum tapa, þegar að ég mætti í þennan
eina tíma sem að ég þurfti að fara í í morgun. Þá var Björgvin að
tala um það að hann nennti ekki að vera í þessu og vonaðist bara
eftir því að þeir myndu detta út snemma. Aron tókst samt að koma
með besta svar sem að nokkur hefur komið með í Gettu Betur en það
var svarið: "Ég segi nú bara eins og Jónas vinur minn "Jesús
Kristur"" Fengum ekki rétt fyrir það.
Í gær var samt leiðinlegt veður og í kjölfar þess féllu niður allir
mínir tímar í skólanum. Þannig að það var bara rólegt hjá manni en
ég þurfti samt að mæta í vinnu klukkan 16. Held að ég hafi ekkert
meira til að skrifa um, enda allir dagar eins og ég hef lítið sem
ekkert að gera.
Snemmi kveður.
P.s. Er einhver tilbúinn að fara með mér á Man Utd - Birmingham 26.
mars?
»
15.01.2006 17:12:12 / Snemmi
Vaknaði frekar snemma í morgun, því að ég átti stefnumót við Örnu
Rún. Ekki svona dinner stefnumót með kertum og læti samt. Heldur
átti ég að hitta hana í Töff Sport klukkan 11:30. Þar var tekið á
því í einn og hálfan tíma og er maður með netta strengi í höndunum.
Síðan var mér boðið í þriggja ára afmæli hjá Siggu Lóu klukkan 15
og var ég bara að koma þaðan. Keypti myndina Hitchikers guide to
the galaxy í gær og ég verð að segja að þetta er ein fyndasta mynd
sem að ég hef séð. Þunglynda vélmennið Marvin er yfirburða karakter
í þessari mynd. Mæli með því að fólk horfi á þessa mynd.
Aðalástæðan að ég er að blogga samt er sú að ég var búinn að lofa
Sigga Valla að setja inn myndir í dag. Ég er búinn að setja inn
myndir af Englandsferð nr. 2 en ég ætla að geyma Highbury myndirnar
til morguns þar sem að þetta tekur agalega langan tíma. Þið getið
skoðað myndirnar með því að smella á tengilinn "Englandsferðir" hér
til hliðar.
Snemmi Kveður.
»
09.01.2006 21:26:45 / Snemmi
Fólk farið að missa trúnna á þessari síðu. En þar sem að skólinn er
byrjaður aftur, þá fer manni að gefast tími til að blogga meira
heldur en að maður gerði um jólin. Skólinn byrjaði á Föstudaginn og
fékk ég inn eitt fag. Það fag var þýska 403, en ég gat reyndar bætt
við mig nát 123 áfanga í p-námi. En þar sem að það er bara eitt fag
inn á töflunni þá er ég bara í 4 tímum á viku. Fæ frí á föstudögum
sem að er mjög fínt. Ég er búinn að setja stefnuna á að vinna
einhvern slatta með þessum tímum og þarf ég að fara að tala við
Gísla Sig. þegar að hann kemur í bæ og tékka hvort að maður geti
fengið einhverja meiri vinnu í Úrval. Látum þetta gott heita í
bili. Lofa að vera duglegri að blogg á næstu dögum.
Snemmi kveður.
»
26.12.2005 19:18:54 / Snemmi
Svo að fólk haldi ekki að þessi síða sé dauð, þá ætla ég að blogg
aðeins núna. Vill byrja á að hrósa Óskari í leigunni fyrir að vera
með opið hjá sér í dag. Því að það þýddi að ég gat farið og keypt
mér bland fyrir kvöldið. Hvað er málið með að allt sé lokað annan í
jólum? Og hversu latir eru íslendingar ef að það er farið að gera
anna í einhverju til að fá aukafrídag? Það er nákvæmlega ekkert
merkilegt við daginn í dag. Eina góða er að maður getur dottið í
það í kvöld. Vill líka þakka Bjarna frænda fyrir að vera eini vinur
minn með viti, sem þýðir að hann er til í það að detta í það í
kvöld.
Ferðasaga um Englandsferðina er í bígerð og birtist hún hér einhver
tímann fljótlega, einnig munu koma myndir inn en ég geri það þegar
að skólinn byrjar og maður fær aftur frítíma.
Ef að fólk er búið að vera að velta því fyrir sér hvað kallinn fékk
í jólagjöf þá getur það glaðst því að hér kemur
jólagjafalistinn.
- Mynd af afa Tryggva (frá ömmu Kristbjörgu)
- War of the Worlds DVD (frá Sólrúnu systur) (ein leiðinlegasta
mynd sem að ég hef séð)
- Day after tomorrow DVD (frá Finni)
- Bók um Formúlu 1 og Hjálpum þeim CD (frá Árný systir)
- Hanska, spil og útskorna mynd af jólasveini (frá ömmu og
afa á Húsavík)
- Bourne identity + Bourne supremecy box set DVD og Toblerone
(frá Gísla og Örnu)
- Rafmagnsgítar + magnari (frá mömmu og pabba)
Þá held ég bara að það sé allt komið. Held líka að það sé allt
komið af því sem að ég ætlaði að skrifa í þessu bloggi. Bjarni fer
að koma þannig að maður þarf nú að fara að hella í sig. Sjáumst
blind fokking full í kvöld og um áramótin. Snemmi kveður.
»
Síður: 1 2 3
|
|